Psalms 2

1Hví geisa heiðingjarnir og hví hyggja þjóðirnar á fánýt ráð? 2Konungar jarðarinnar ganga fram, og höfðingjarnir bera ráð sín saman gegn Drottni og hans smurða: 3,,Vér skulum brjóta sundur fjötra þeirra, vér skulum varpa af oss viðjum þeirra.`` 4Hann sem situr á himni hlær. Drottinn gjörir gys að þeim. 5Því næst talar hann til þeirra í reiði sinni, skelfir þá í bræði sinni: 6,,Ég hefi skipað konung minn á Síon, fjallið mitt helga.`` 7Ég vil kunngjöra ályktun Drottins: Hann mælti við mig: ,,Þú ert sonur minn. Í dag gat ég þig. 8Bið þú mig, og ég mun gefa þér þjóðirnar að erfð og endimörk jarðar að óðali. 9Þú skalt mola þá með járnsprota, mölva þá sem leirsmiðs ker.`` 10Verið því hyggnir, þér konungar, látið yður segjast, þér dómarar á jörðu. 11Þjónið Drottni með ótta og fagnið með lotningu. 12Hyllið soninn, að hann reiðist eigi og vegur yðar endi í vegleysu, [ (Psalms 2:13) því að skjótt bálast upp reiði hans. Sæll er hver sá er leitar hælis hjá honum. ]
Copyright information for Icelandic